PO
EN
Search
Close this search box.

Nóvemberfundur EVG

13. nóvember
kl. 20:00

Kæru félagar! Nú verður fjör!

Næsti fundur EVG verður haldinn 13. nóv. í Stangarhyl 4, húsnæði FEB kl. 20.

Við byrjum fundinn með ávarpi Svandísar Svavarsdóttur, skeleggri að vanda. Og í ljósi þess að kosningar eru framundan ætlum við að skoða söguna með því að rýna í nýútkomnar bækur þeirra Svavars Gestssonar og Steingríms J. Sigfússsonar og mega áheyrendur koma með spurningar um innihald bókanna eða tengingar við þær, nú er tækifærið!

1. Svandís Svavarsdóttir ávarpar fundinn.
2. Guðrún Ágústsdóttir flytur stuttan inngang.
3. Steimgrímur J. Sigfússon og Árni Matthíasson ræða um bók Svavars: Það sem sannara reynist.
4. Kaffi og spjall.
5. Um Fólk og fleira, bók Steingríms J. Höfundur hefur sjálfur framsögn, les valda búta og býður upp á spurningar svo upplagt er að koma vel undirbúinn.
6. Og söngur eins og ævinlega – Páll Eyjólfsson og Sigurður Alfonsson leika undir söngvum sem auðvitað allir kunna, Gunnar Guttormsson gefur tóninn.

Kaffihlé og kleinur um 9-leytið – munið seðil í kaffisjóðinn! – Sem fyrr er fólk minnt á að taka með sér gesti því fundirnir eru öllum opnir. Næsti fundur verður 11. desember 2024.

Hittumst heil.

Ath. Unnið hefur verið að því að fækka pappírsfundarboðum en þau standa að sjálfsögðu líka til boða áfram. Og munið að netpóstsending gefur færi á að áframsenda einhverjum sem gæti haft gott af því að koma á fundina okkar en veit kannski ekki af þeim.

Undirbúningshópurinn:

Bryndís 861 9186; Svanhildur 863 2354; Þóra Elfa 824 6518, Þuríður Backman 861 9031.

__________________________

Almennt um fundina:

Eldri vinstri (EVG) græn hafa frá því í des. 2005 haldið hópinn og hist reglulega einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina. Sjálfboðaliðar hafa undirbúið fundina og lagt áherslu á að – auk spjalls yfir kaffibolla – sé jafnan eitthvað til fróðleiks og skemmtunar. Þessi tilhögun hefur mælst vel fyrir – Starfssvæði hópsins er óskilgreint, engin félagsgjöld en frjáls framlög í kaffisjóð til að standa undir útlögðum kostnaði. – Tilgangurinn er fyrst og fremst að miðla fróðleik og rifja upp ýmis áhugaverð efni sem liggja til hliðar við eða sem aðeins óbeint tengjast hinni daglegu pólitísku umræðu. Hér má nefna ýmis menningarmál, málefni sem tengjast baráttu launafólks, útgáfumál, bókmenntir og listir, menntamál, þjóðfrelsismál, alþjóðamál o. fl. – Skemmtiatriði af ýmsu tagi eru fastur liður, svo sem tónlistarflutningur og fjöldasöngur. – Stefnt er að því að fundunum ljúki að jafnaði um kl. 22.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search