Annar fundur í fundaröð svæðisfélagsins í Hafnarfirði í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga fjallar um Borgarlínuna, örflæði, hjólastíga og annað sem skiptir máli hvernig við byggjum upp samfélag.
Hvaða stefnu vilt þú sjá skipulagsmálum í Hafnarfirði næstu áratugina? Skiptir það máli hvort gerð verði borgarlína, lagt aukið fjármagn í öðruvísi samgöngumöguleika en einkabílinn og að hugsað sé fyrir allri grunnþjónustu í skipulagningu og endurskipulagningu á hverfum?
Gestur fundarins verður Hafnfirðingurinn Lilja G. Karlsdóttir samgönguverkfræðingur og sviðsstjóri hjá VSB.
Hér er hlekkur á fundinn:
https://eu01web.zoom.us/j/66029688165
Öll velkomin!