Svæðisfélag Austurlands boðar til fjarfundar 3. apríl sem er laugardagurinn fyrir páska. Fundur hefst kl. 11:00
Fundarefni er val á landsfundarfulltrúum og mögulegar ályktanir fyrir komandi landsfund.
Hér með auglýsir stjórn eftir fulltrúum okkar á landsfund sem haldinn verður 7.-9.maí.
Áhugasamir Vg félagar á Austurlandi sem vilja sækja landsfund 7. – 9. maí n.k. sem fulltrúar svæðisins, eru hvattir til að hafa samband við formann svæðisfélagsins á Austurlandi fyrir fund eða gefa sig fram á fundinum sjálfum. Félagið á rétt á 15 félagsmönnum með kosningarétt á fundinum (öllum félagsmönnum er þó frjálst að sækja fundinn en þá án atkvæðisréttar)
Fundarslóð verður deilt á fésbókarsíðu félagsins fyrir fund.
Skráning/tillaga að fulltrúa: svandisegils@gmail.com
Stjórn svæðisfélags Vg á Austurlandi