Boðað er til félagsfundar Svæðisfélags VG á Austurlandi fimmtudaginn 26.janúar kl 20.00.
Dagskrá:
– Flokksráðsfundur 11. feb.
– Landsfundur 17-19 mars nk. á Akureyri
– Sveitarstjórnarmál Múlaþing
– Sveitarstjórnarmál Fjarðabyggð
– Önnur mál
Með það í huga að sem flest hafi möguleika á að sækja fundinn óháð vegalengdum og færð verður fundurinn að þessu sinni fjarfundur og mun hlekkur á Zoom svæði fundarins koma hér inn tímanlega.
Við hlökkum svo til að hitta ykkur öll með hækkandi sól �
Ef einhver komast ekki á fundinn en hafa hug á að mæta á landsfund bendum við viðkomandi á að hafa samband við stjórn.
– Stjórn svæðisfélags VG á Austurlandi