Search
Close this search box.
Fjarfundur á zoom

Sveitarstjórnarráð. Fundur með framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga

14. febrúar
kl. 16:00

Sveitarstjórnarráð Vinstri grænna heldur annan fund sinn á árinu 14. febrúar, klukkan 16.00. Gestur fundarins verður Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Rætt verður við hann um starfsemi Sambandsins og hvaða þjónustu sveitarstjórnarfulltrúar geta sótt þangað.

Sveitarstjórnarráð VG er skipað sveitarstjórnarfulltrúum, af listum VG, eða óháðum listum, sem eru félagar í VG, varafulltrúum í sveitarstjórn, oddvitum framboða, sem ekki náðu kjöri og sveitarstjórum, séu þeir skráðir félagar.

Sérstök athygli er vakin á því að fulltrúar í flokksráði hafa seturétt sem áheyrnarfulltrúar í sveitarstjórnarráði, samkvæmt lögum hreyfingarinnar.

Fyrir hönd stjórnar sveitarstjórnarráðs.

Álfhildur Leifsdóttir, formaður.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search