Search
Close this search box.

Sveitarstjórnarráðstefna VG

Sveitarstjórnarráðstefna VG fer fram laugardaginn 4. maí á Gamla Kaupfélaginu. Athugið að frá kl. 10.00 – 12.00 fer fram lokaður fundur sveitarstjórnarráðs (fyrir aðal-, vara- og nefndarmenn í sveitarstjórnum) en eftir kl. 12.00 er ráðstefnan öllum opin. Eftir ráðstefnuna verður farið í strandhreinsun – eða plokk – undir stjórn umhverfisráðherra. Komið því klædd eftir veðri og vel skóuð.

Skráið ykkur með því að nota formið hér að neðan:

Skráning á sveitarstjórnarráðstefnu

Dagskrá

10:00 Lokaður fundur sveitarstjórnarráðs (aðal-, vara- og nefndarmenn í sveitarstjórnum). Húsið opnar 9:30 með kaffi og spjalli.
12:00 Hádegismatur* – Ráðstefnan verður öllum opin
13:00 Setning – Bjarni Jónsson setur ráðstefnuna
13:00 Nýjar áskoranir í umhverfismálum
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra hefur málþingið
Bjartur Steingrímsson, formaður umhverfisnefndar Mosfellsbæjar flytur erindi um nýja umhverfisstefnu mosfellsbæjar. Farið yfir áherslur við gerð stefnunnar, tengingu við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og mikilvægi samráðs við íbúa og sérstöðu bæjarfélagsins við gerð slíkrar stefnu.
Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, formaður Landssambands íslenskra stúdenta fjallar um Loftslagsverkfall
Inga Katrín D Magnúsdóttir, sveitarstjórnarmaður í Skagafirði: Hvert förum við héðan? Hugleiðingar um umhverfisvernd, stefnumörkun og framtíðina
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi VG, flytur erindið „Hugsum um heiminn – byrjum heima“. Mengun og rusl þekkir engin landamæri og getur ferðast nokkuð frjálst um langan veg. Við erum auðvitað samábyrg hér á Íslandi og það er mikilvægt að setja markið hátt. En hversu hátt?
Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir og Sæmundur Helgason stýra umræðum
14:45 Kaffihlé
15:00 Heilbrigðisþjónusta í takt við nýja tíma
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, hefur málþingið.
Rún Halldórsdóttir er svæfingalæknir og fyrrverandi bæjarfulltrúi VG á Akranesi. Rún flytur erindið „Hugleiðingar um heilbrigðisþjónustu og byggðastefnu“.
Sævar Freyr Þráinsson er bæjarstjóri á Akranesi. Sævar flytur erindið „Sýn bæjarfélags á heilsu-, hamingju og vellíðan íbúa“.
Gígja Gunnarsdóttir, verkaefnastjóri Heilsueflandi samfélags hjá Embætti landlæknis, flytur erindið: „Vellíðan fyrir alla í Heilsueflandi samfélagi“.

Sóley Björk Stefánsdóttir og Ingvar Arnarson stýra umræðum

17:00 Plokk með Guðmundi Inga umhverfisráðherra (Ráðstefnulok)

*Greitt á staðnum, kr. 2.690.

Kjúklingaréttur: tandori kjúklingur, tikkamasala sósa, hrísgrjón, ferskt salat, brauð og pestó.

Vegan: Oumph vefja með chipotle sósu, kál, tómat, lauk, gurku og sætkartöflufranskar

 

Fyrirspurnum um ráðstefnuna skal beint til Bjarna Jónssonar formanns sveitarstjórnarráðs (s. 894 7479) eða Bjarka Þórs Grönfeldt (s. 616-7417), starfsmanns ráðsins.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search