Search
Close this search box.
Hótel Natura – Reykjavík

Sveitarstjórnarráðstefna

19. mars
kl. 10:00

Frambjóðendur, kosningastjórnir og sveitarstjórnarráð Vinstri grænna halda sveitarstjórnarráðstefnu og skerpa á helstu línum í kosningabaráttunni þegar tæpir tveir mánuðir eru til kosninga.

Ráðstefnan verður að þessu sinni haldinn í Reykjavík, á Icelandair Hótel Reykjavík Natura, laugardaginn 19. mars 2022.

Fundurinn er opinn öllum félögum VG en sérstaklega hvetjum við sveitarstjórnarfólk, frambjóðendur og önnur sem áhuga hafa á að taka þátt í sveitastjórnarbaráttunni að mæta.

Gjaldfrjálst er á fundinn. Kaffi og morgunveitingar verða á boðstólum, en hægt er að fá hádegismat gegn hóflegu gjaldi.

Að fundi loknum munum við flytja okkur fyrir á Braggann þar sem við getum glaðst saman og peppað upp stemningu fyrir komandi kosningabaráttu!

Dagskrá:

10.00 – 10.15    Bjarni Jónsson, formaður sveitarstjórnarráðs, setur ráðstefnuna.

10.15 – 10.30     Katrín Jakobsdóttir, formaður VG ávarpar gesti.

10.30 – 12.00    Kynning framboðslista. Fólkið og áherslurnar framundan í hverju sveitarfélagi.

Hádegi.   Myndatökur hefjast.

13.00 – 14.00   Gestur fundarins, Kristinn Jónasson, sveitarstjóri í Snæfellsbæ og umræður um hvað er að vera sveitarstjórnarfulltrúi, gagn og gaman.

14.00 – 15.00   Pallborð með örerindum, reynsla VG í sveitarstjórnum og hvernig næst árangur í samstarfi. Andrés Skúlason, Aldey Traustadóttir, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Nanný Arna Guðmundsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Óli Halldórsson, Sóley Björk Stefánsdóttir, Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir.

15.00 – 15.15   Kári Sævarsson í Tvist um kosningabaráttuna.

15.00 – 16.00   Hópastarf um kosningabaráttuna, praktísk atriði, samstarf, framlag forystu, þingflokks og starfsfólks.

16.00 – 16.30    Samantekt hópstjóra.

Frjáls tími og myndatökur…..

Samverustund og léttar veitingar.

Og þegar líður á síðdegið kíkjum við í Braggann og þar á eftir á kvöldgleði Náttúruverndarþings.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search