Í ár eru 20 ár frá því Ung vinstri græn var stofnað. Í tilefni þess var áætlað að halda afmælisveislu og útgáfuhóf í tengslum við þing Ungmennaráðs Norðurlandaráðs í október. Eins og kunnugt er orðið hafði veiran áhrif á það líkt og aðra hluti á árinu 2020. Við deyjum ekki ráðalaus og blásum til útgáfuhófs á Zoom miðvikudaginn 18. nóvember kl. 20:30. Okkar eina sanna Elín Oddný verður með Barsvar og við skálum rafrænt fyrir 20 ára afmæli UVG og nýjasta tölublaði Íllgresis. Hlökkum til að sjá sem flest andlit á skjánum.
Fylgist með okkur á facebook og instagram fyrir nánari upplýsingar.