Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra og Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna í Reykjavík taka á móti gestum og gangandi í vöfflukaffi á sunnudaginn.
Á viðburðinum verður rætt um áskoranir og tækifæri í velferðarmálunum og áherslur Vinstri grænna í Reykjavík í þessum mikilvæga málaflokki sem skarar alla þætti samfélagsins.
Við bjóðum upp á vöfflur og kaffi!