VG á Akranesi boðar til félagsfundar nk. laugardag með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. Fundurinn, sem fram fer í sal Grundaskóla, stendur frá kl. 11 til 13.
Líkt og sönnum innfluttum nýbúa á Akranesi mun formaður félagsins á Skaganum sjá til þess að í boði verði hennar eigið uppáhaldsSkaganasl – eins og bakkesli úr Kallabakaríi og uppáhellt kaffi frá Kaju.
Tekið skal fram að um staðfund er að ræða. Allra sóttvarna verður gætt hins ítrasta líkt og vera ber og félagar beðnir um að mæta á staðinn með grímu fyrir vitum.
Hittumst og spjöllum saman um starfið og kosningarnar framundan.
Njótum þess að mætast og kætast á einni og sömu stundinni.
F.h. VG á Akranesi
Þóra Magnea Magnúsdóttir formaður VG á Akranesi