Vinstri græn á Akureyri og nágrenni boða til fundar og opins húss laugardaginn 8. október klukkan 15.00 – 17.00 í Brekkugötu 7.
Á fundinum verður skráning á fulltrúum félagsins á kjördæmisþing sem haldið verður í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu 22. október.
Von er á gesti úr þingflokki VG og heitt kaffi á könnu.
fh. stjórnar Ólafur Kjartansson, formaður.