Search
Close this search box.

Forval í Reykjavík 2. til 5. mars

Deildu 

Forval í þrjú efstu sæti framboðslista Vinstri grænna til borgarstjórnar Reykjavíkur fer fram dagana 2. til 5. mars. Kjörstjórn Vinstri grænna í Reykjavík hvetur alla félaga sem vilja hafa áhrif og leggja sitt af mörkum til að bjóða sig fram.

Allir félagar í Vinstri grænum sem verða kjörgengir í borgarstjórnarkosningunum þann 14. maí næstkomandi geta boðið sig fram í forvalinu. Framboðsfrestur er til loka mánudagsins 7. febrúar nk. Framboðum skal skila til kjörstjórnar með tölvupósti í netfangið reykjavik@vg.is. Einnig er hægt að stinga upp á frambjóðanda með ábendingu til kjörstjórnar, sem kannar þá hug viðkomandi.

Forvalið verður rafrænt og hefst kl. 00:00 miðvikudaginn 2. mars og lýkur kl. 17:00 laugardaginn 5. mars. Kosningarétt í forvalinu hafa félagar í Vinstri grænum í Reykjavík sem eru skráðir félagar tíu dögum fyrir upphaf kosningar, og því þurfa nýir félagar að skrá sig í síðasta lagi fyrir lok sunnudagsins 20. febrúar til að geta kosið. Til að greiða atkvæði í forvalinu þarf að auðkenna sig með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Um forvalið gilda reglur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs um forval.

Þegar niðurstöður forvals liggja fyrir mun kjörstjórn vinna tillögu að fullskipuðum framboðslista sem lögð verður fram til samþykkis á félagsfundi Vinstri grænna í Reykjavík. Kjörstjórn mun nota aðferð uppstillingar í sæti 4 til 46 og hvetur kjörstjórn félaga sem hafa áhuga á að sitja í þeim sætum að senda póst á netfang kjörstjórnar.

Nánari upplýsingar

Öllum fyrirspurnum og ábendingum er hægt að koma á framfæri við kjörstjórn á netfangið reykjavik@vg.is.

Kjörstjórn Vinstri grænna í Reykjavík

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search