Seinni af tveimur framboðsfundum Vinstri grænna á Akureyri fer fram laugardaginn 26. febrúar, klukkan 13.00. Fundurinn verður í Rauða kross salnum á Akureyri, Viðjulundi 2. Á fundinum fá frambjóðendur í forvali Vinstri grænna í efstu sex sætin á lista hreyfingarinnar að kynna sig og sína málefnastöðu. Níu eru í framboði:
- Ásrún Ýr Gestsdóttir, háskólanemi, í 1. sæti
- Einar Gauti Helgason, matreiðslumeistari, í 3. sæti
- Herdís Júlía Júlíusdóttir, iðjuþjálfi, í 6. sæti
- Hermann Arason, framkvæmdastjóri, í 2.-4. sæti
- Inga Elísabet Vésteinsdóttir, landfræðingur, í 6. sæti
- Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, varabæjarfulltrúi, í 1. sæti
- Ólafur Kjartansson, vélvirki og fyrrv. framhaldskólakennari, í 2. sæti
- Sif Jóhannesar Ástudóttir, verkefnastjóri, í 2.-6. sæti
- Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi, 4.-6. Sæti
Nánari upplýsingar um forvalið:
Forval á Akureyri 2. til 5. mars – Vinstri græn (vg.is)