Search
Close this search box.
Fjarfundur á Google Meet

Fastanefndir VG: Allsherjar- og menntamálanefnd

17. október
kl. 20:30

Næsti fundur Allsherjar- og menntamálanefndar fer fram þriðjudaginn 17. október klukkan 20.30.

Til umræðu verða tvö mál. Fyrst verður rædd kynfræðsla í skólum og þeir öfgar og sú hatursorðræða sem átti sér stað á síðastliðnum vikum. Sérstakur gestur undir þessum lið verður Daníel E. Arnarsson frá S78.

Einnig munum við ræða frumvarp til laga um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

Undir Allsherjar- og menntamálanefnd falla m.a. jafnréttismál, menntamál, menningarmál, íþróttir, rannsóknir, útlendingamál, lögreglumál og dómsmál.

Hópstjórn: Sæmundur Helgason og Íris Andrésdóttir

Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að landsfundi í vor. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/

Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þess að sitja fundina.

Hlekkur á fundinn er hér.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search