Fyrsti fundur Umhverfis- og samgöngunefndar fer fram miðvikudaginn 27. september.
Til umræðu verða orkumál og veltum við sérstaklega fyrir okkur: er stefna VG trúverðug í orkumálum eða þurfum við að endurskoða stefnuna með það að markmiði að hún verði trúverðug?
Hlekkur á fundinn er hér.
Hvetjum öll sem ætla að mæta hress til fundar að lesa gildandi stefnu VG á heimasíðu hreyfingarinnar.
Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að landsfundi í vor. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/
Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.
Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þess að sitja fundina.