Search
Close this search box.
Fjarfundur á Teams

Fastanefndir VG: Velferðarnefnd

18. janúar
kl. 20:15

Næsti fundur Velferðarnefndar fer fram miðvikudaginn 18. janúar klukkan 20:15. Fundurinn er opinn öllum félögum og fer fram á Teams.

Jódís Skúladóttir, sem situr í Velferðarnefnd Alþingis, mun vera gestur fundarins og fara yfir stöðuna á þinginu, hvaða mál eru í umræðunni og hver hennar sýn er á það sem fram þarf að koma í velferðarstefnu.

Undir Velferðarnefnd falla m.a. heilbrigðismál, félagsmál, vinnumarkaðsmál og almannatryggingar.

Hópstjórn: Aldey Unnar Traustadóttir og Guðný Hildur Magnúsdóttir.

Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að landsfundi í vor. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/

Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þess að sitja fundina.

Hlekkur á fundinn er hér.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search