PO
EN
Search
Close this search box.

Svandís um bakpokann, pólitíkina og hættuna frá hægri

Deildu 

Ávarpið
Ávarpið
Svandís um bakpokann, pólitíkina og hættuna frá hægri
Loading
/

Þegar Svandís Svavarsdóttir var sjö ára horfði hún á sína fyrstu kosningavöku í sjónvarpinu og hefur sjaldan, eða aldrei, misst af þeim síðan. Hún lærði fljótt að donta og reikna út uppbótarþingmenn, skrifaði samviskusamlega upp tölur eftir kjördæmum um leið og þær bárust og færði þær inn eftir kúnstarinnar reglum – undir dyggri leiðsögn pabba síns. „Ég meina, ég brenn fyrir pólitík,“ segir Svandís, þegar hún bendir á að hún hafi nú verið orðið rúmlega fertug þegar hún loks hóf sín afskipti af stjórmálum. Á átján ára stjórnmálaferli hefur Svandís verið framkvæmdastjóri VG, borgarfulltrúi, þingflokksformaður, umhverfis- og auðlindaráðherra, heilbrigðisráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og svo matvælaráðherra og innviðaráðherra. Svandís Svavarsdóttir er gestur Ávarpsins þar sem hún ræðir meðal annars um nýjasta giggið á ferilskránni: Formaður VG.
Umsjónarmenn þáttarins eru Sunna Valgerðardóttir og Bjarki Hjörleifsson.

Fleiri þættir

Ályktun til Marx um að fundurinn hafi náð til Róta flokksins

Hvað eiga breytingar á ályktun, heimabruggað Hiroshima og fúlir bakaríiskallar sem hræðast konur, sameiginlegt? Allt kemur þetta við sögu í Ávarpi vikunnar, þar sem Bjarki Hjörleifsson setur á sig stjórnmálafræðiprófessorahattinn og útskýrir fyrir Sunnu Valgerðardóttur hvernig kaupin ganga fyrir sig á eyrinni. Þau fara yfir nýafstaðinn landsfund VG um síðustu helgi, skoða breytingarnar sem umtalaðasta ályktun síðari ára tók á fundinum og sögðu nokkra brandara við gífurlega góðar undirtektir hjá þeim sjálfum.

Landsfundasögur leikarans og dýrahirðisins

Það er búist við góðri stemningu, gleði og átökum á komandi landsfundi VG. Von er á hátt í 300 manns í Safamýrina um helgina, þar sem bæði verður litið um öxl en sömuleiðis horft fram á við. Svona eins og stjórnmálafólk gerir. Sunna Valgerðardóttir og Bjarki Hjörleifsson ræða við Orra Pál Jóhannsson, þingflokksformann VG og fyrrverandi dýrahirði, og Hreindísi Ylvu Garðarsdóttur Holm, skrifstofu- og viðburðarstjóra, leikara og fyrrverandi flugfreyju, um landsfundi fortíðarinnar, hvað sé svona merkilegt við þá og við hverju megi búast.

Konur, krem og Kárahnjúkar

Ávarpið snýr aftur með seríu númer tvö eftir stutt en viðburðaríkt hlé. Fyrsti gestur þáttarins er konan sem stýrir Kvenréttindafélagi Íslands. Hún var einu sinni doktorsnemi í lífefnafræði, svo varð hún doktor og fór að vinna með prótein til að gera krem og serum hjá einu virtasta snyrtivöruframleiðanda Evrópu. Svo ákvað hún að helga sig náttúrunni og varð framkvæmdastjóri Landverndar. Hún ræðir við Bjarka Hjörleifsson og Sunnu Valgerðardóttur um eina snyrtidótið sem virkar í alvörunni, sárið sem Kárahnjúkadeilan skildi eftir sig, skógrækt, kolefnisjöfnunaræði Íslendinga, tradwives, hrútana í landbúnaðinum og skort á skilningi þeirra sem ráða. Og birkitréð sem mamma hennar felldi.

„Áframhaldandi endurreisn millifærslukerfa sem jafna stöðu fólks“

Karlakór alþýðunnar snýr aftur. Bjarki fær til sín nafna sinn dr. Bjarka Þór Grönfeldt og Kára Gautason en þeir ræða m.a. málfrelsi, Eurovision, ójöfnuð, vistarbönd, lýðheilsu, kjarasamninga, endurreisn millifærslukerfanna og því að það er hreint orsakasamband milli þess að VG sé í ríkisstjórn og að tekjujöfnuður aukist í landinu.

Ragnar Auðun nýr framkvæmdastjóri VG

Bjarki Hjörleifsson ræðir við Ragnar Auðun Árnason nýjan framkvæmdastjóra Vinstri grænna. Bjarki og Ragnar ræða hin ýmsu mál í hlaðvarpsþættinum t.a.m. Norræn stjórnmál, þátttöku í félagsstarfi og uppgang hægri öfgaflokka.

„Afhverju erum við eiginlega að kenna dönsku?“

Í Ávarpinu að þessu sinni ræðir Bjarki við þær Hólmfríði Árnadóttur og Álfhildi Leifsdóttur, kennara, um dönsku, möguleika nemenda til að hafa áhrif á eigin menntun, tækniframfarir og símanotkun, PISA, bölsýni fjölmiðla á æskuna björtu og hlutverk menntakerfisins í stóru myndinni.

„Ég held það sé innri mótsögn í þessu fyrir hægri flokka“

Bjarki fær til sín nafna sinn dr. Bjarka Þór Grönfeldt og Kára Gautason. Karlakór alþýðunnar ræðir samfélagsmiðla og áhrif þeirra á daglegt líf, hamstrahjól hversdagsins og skírlífi gegn eigin vilja (incels) en Bjarki Þór hefur rannsakað það fyrirbrigði á síðustu árum. Þeir hefja umræðuna á komandi kosningaári en um 70 kosningar fara fram víða um heim á þessu ári, m.a. forsetakosningar í Bandaríkjunum, á Ísland og í Rússlandi.

„Baráttan fyrir friði verður alltaf að vera lifandi“

Steinunn Þóra Árnadóttir þingkona Vinstri grænna og Bjarki Hjörleifs ræða um nútíma stríð, ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs, mikilvægi friðarhreyfingarinnar og uggvænlegar tækniframfarir í hernaði.

„Við þurfum að snúa frá þessu kaupa, nota, henda fyrirkomulagi“

Af hverju eru settir vondir molar í Mackintosh? Gunnar Dofri Ólafsson, samskipta og viðskiptaþróunarstjóri Sorpu, ræðir við Bjarka um svartan föstudag, gerviþörf, breytt neyslumynstur og hvernig það er ekki alltaf allt eins og það sýnist í endurvinnslunni.

„Íþróttahreyfingin á ekki að fá neinn afslátt“

Bjarki spyr Önnu Þorsteinsdóttur þjóðgarðsvörð, fótboltakonu, friðarsinna, femínista og umhverfissinna hvort allir vinstrimenn séu anti-sportistar. Anna hélt þrumuræðu á Austurvelli á dögunum vegna liðs Breiðabliks við ísraelska liðið Maccabi Tel Aviv. Þau ræða um íþróttir, keppnisskap og pólitíkina í stóru myndinni.

33. Nanný Arna Guðmundsdóttir – bæjarfulltrúi Í-listans á Ísafirði

32. Álfhildur Leifsdóttir – oddviti VG í Skagafirði

31. Thelma Dögg Harðardóttir – oddviti VG í Borgarbyggð

30. Aldey Unnar Traustadóttir – oddviti VG og óháðra í Norðurþingi

29. Sigurður Torfi Sigurðsson – oddviti VG í Árborg

28. Davíð Arnar Stefánsson – oddviti VG í Hafnarfirði

27. Ólafur Þór Gunnarsson – oddviti Vinstri grænna í Kópavogi

26. Líf Magneudóttir – Oddviti Vinstri grænna í Reykjavík

25. Orri Páll Jóhannsson – Þingflokksformaður VG

24. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir

23. Elín Björk Jónasdóttir

22. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir

21. Bjarni Jónsson

20. Steinunn Þóra Árnadóttir

19. Agnieszka Ewa Ziólkowska, varaformaður Eflingar

18. Kári Gautason

17. Óli Halldórsson

16. Elín Oddný Sigurðardóttir

15. Guðmundur Ingi Guðbrandsson

14. Líf Magneudóttir

13. Katrín Jakobsdóttir

12. Sigrún Birna Steinarsdóttir

11. Hreindís Ylva Garðarsdóttir Hólm

10. Jódís Skúladóttir, oddviti framboðs Vinstri grænna á Austurlandi

9. Kolbeinn Óttarsson Proppé

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search