Search
Close this search box.

Greinar

Viðreisn samsæriskenninganna

Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, vekur í grein í Fréttblaðinu 25. febrúar, athygli á því hve mikil ánægja er með heilsugæsluna. Vísar hún í þjónustukönnun Sjúkratrygginga Íslands (SÍ), sem sýnir að 74% aðspurðra bera traust til heilsugæslunnar og 79% eru ánægð með þjónustuna. Það er fagnaðarefni að Hanna Katrín skuli taka höndum saman með okkur […]

Viðreisn samsæriskenninganna Read More »

Tillögur átakshóps til að leysa úr vanda bráðamóttöku Landspítala

Átakshópur sem fjallað hefur um lausnir á þeim vanda sem birtist á bráðamóttöku Landspítalans leggur fram ellefu tillögur um aðgerðir sem forgangsraðað er eftir mikilvægi. Tillögurnar og fyrstu viðbrögð við þeim voru kynnt á fréttamannafundi sem haldinn var á Landspítalanum í Fossvogi í dag. Ákvörðun um skipun átakshópsins var tekin á sameiginlegum fundi heilbrigðisráðherra, landlæknis

Tillögur átakshóps til að leysa úr vanda bráðamóttöku Landspítala Read More »

Mikil uppbygging í þágu fatlaðs fólks í Reykjavík

Húsnæðismál eru brýn velferðarmál. Mikið hefur áunnist í réttindabaráttu fatlaðs fólks síðustu ár. En ljóst var strax árið 2011, þegar sveitarfélög tóku yfir málaflokkinn,  að þörf var á gríðarlegri uppbyggingu í búsetuúrræðum fatlaðs fólks, enda hafði málaflokkurinn verði vanræktur um langt skeið. Þegar ég tók tímabundið við formennsku í velferðarráði í upphafi árs 2014 lagði

Mikil uppbygging í þágu fatlaðs fólks í Reykjavík Read More »

Sjúklingar borga minna

Lækkun greiðslu­þátt­töku sjúk­linga er afger­andi þáttur í því að tryggja jafnt aðgengi fólks að heil­brigð­is­þjón­ustu. Gögn frá Evr­ópsku töl­fræði­stofn­un­inni, Eurosta­t, ­sýna að um um það bil 3,5 pró­sent Íslend­inga þurftu að neita sér um lækn­is­þjón­ustu vegna kostn­að­ar, fjar­lægðar eða bið­tíma árið 2016. Um 5% allra tekju­hópa þurftu að neita sér um tann­lækna­þjón­ustu á sama tíma. Óupp­fyllt

Sjúklingar borga minna Read More »

Mikil samstaða og sóknarhugur innan VG á Austurlandi

Svæðisfélög Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Austurlandi efndu formlega til aukaaðalfunda félaganna þann 21.febrúar síðastl. Auk lögbundinna dagskrárliða var meginefni fundanna að taka afstöðu til sameiningar svæðisfélaga VG á Austurlandi. Svæðisfélög VG á Austurlandi hafa verið tvískipt – Fjarðabyggð og Djúpavogshreppur annarsvegar og hinsvegar Fljótsdalshérað, Fljótsdalshreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður og Borgarfjarðarhreppur. Niðurstaða aðalfunda beggja félaganna var einróma að

Mikil samstaða og sóknarhugur innan VG á Austurlandi Read More »

Þingmolar

Þingmenn VG voru á ferð og flugi í síðustu viku í svokallaðri kjördæmaviku. Þar hittu þingmenn fjölda fólks víða um land á opnum fundum og vinnustaðaheimsóknum. Þingstarfið hófst svo á ný í vikunni og þingmennirnir vel nestaðir inn í vinnuna framundan. Á mánudag mælti Kolbeinn Óttarsson Proppé fyrir þingsályktunartillögu sinni um starfshóp um útgáfu öruggra

Þingmolar Read More »

Að tala við tækin

Með aukinni tæknivæðingu heimsins verður daglegt líf okkar mannfólksins bæði einfaldara og flóknara á sama tíma. Daglegt amstur hefur einfaldast töluvert en á sama tíma stöndum við frammi fyrir flóknum úrlausnarefnum. Eitt af þeim er hvernig við munum standa vörð um íslenska tungu í stafrænum heimi. Tungumál eru jú eitt það mikilvægasta og persónulegasta sem

Að tala við tækin Read More »

Breytingin byrjar heima

Í fyrravetur sýndi Ríkissjónvarpið þættina hvað höfum við gert. Þeir vöktu verðskuldaða athygli.  Í kjölfar þeirra ættum við að spyrja okkur: Hvað getum við gert? Okkur hefur lengi verið tamt að trúa því að á Íslandi væri eitt grænasta hagkerfi heimsins, lítil mengun og mikið frumkvæði í umhverfisvænum lifnaðarháttum. Að við lifðum í mikilli og

Breytingin byrjar heima Read More »

Katrín Jakobsdóttir, formaður Heimsráðs kvenleiðtoga.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók í dag við formennsku í Heimsráði kvenleiðtoga. Hún tekur við embættinu af Kolindu Grabar-Kitarović, fráfarandi forseta Króatíu, sem gegnt hefur formennsku frá mars árið 2019. Heimsráð kvenleiðtoga var stofnað árið 1996 af Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands og Mary Robinson, fyrrverandi forseta Írlands ásamt Lauru Liswood, stjórnmálafræðingi, sem enn starfar sem

Katrín Jakobsdóttir, formaður Heimsráðs kvenleiðtoga. Read More »

Níutíu milljónum úthlutað úr lýðheilsusjóði til 144 verkefna

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra úthlutaði í gær styrkjum úr lýðheilsusjóði til fjölbreyttra verkefna á svið i geðræktar, næringar, hreyfingar og tannverndar, auk áfengis-, vímu- og tóbaksvarna. Alls bárust 247 umsóknir í sjóðinn. Upphæðir styrkja til einstakra verkefna nema á bilinu 125.000 krónum upp í þrjár milljónir króna til þeirra verkefna sem hlutu hæstu styrkina. Meginmarkmið Lýðheilsusjóðs

Níutíu milljónum úthlutað úr lýðheilsusjóði til 144 verkefna Read More »

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search